Vilja skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla

Tólf þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um sjálfkeyrandi bíla. Þingmennirnir vilja að innviðaráðherra láti endurskoða og ráðast í breytingar á umferðarlögum, lögum um ökutækjatryggingar og lögum um leigubílaakstur. Markmiðið er að skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla. Þingmennirnir vilja að í fyrirhuguðu frumvarpi verði settar sérreglur um notkun slíkra bíla og sakarskiptingu tjóna milli framleiðanda og notanda.Þingmennirnir segja ýmis lagaleg álitaefni, svo sem um ábyrgð á tjóni, hvar megi keyra sjálfkeyrandi bílum og hver hámarkshraði þeirra ætti að vera. Visst lagalegt tómarúm er um sjálfkeyrandi bíla, segja þingmennirnir.RÚV / Þórdís Arnljótsdóttir
Vilja skýra réttarstöðu sjálfkeyrandi bíla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd