Fólki í efsta skattþrepi fækkaði milli ára

Landsmenn greiddu samtals 346 milljarða króna í tekjuskatt til ríkisins og 417 milljarða í útsvar til sveitarfélaga á síðasta ári, samkvæmt samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins.Tekjuskatts- og útsvarsstofn hækkaði um 8,4 prósent milli ára. Laun og hlunnindi hækkuðu um 7,4 prósent, greiðslur frá lífeyrissjóðum um 11,8 prósent og greiðslur frá Tryggingastofnun um 12,3 prósent. Atvinnuleysisbætur hækkuðu um 20,2 prósent milli ára. Rúmlega helmingur framteljenda, 53,3 prósent, greiddi skatt í fyrsta og lægsta skattþrepinu. 41,9 prósent greiddu tekjuskatt í öðru þrepi og 4,8 prósent í efsta skattþrepinu. Ríflega sextán þúsund greiddu skatt í efsta skattþrepinu á síðasta ári. Þeim fækkaði um 1.700 milli ára. Hver eru skattþrepin? Staðgreiðsla skatta af launatekjum er reiknuð út frá þremu
Fólki í efsta skattþrepi fækkaði milli ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd