Vottorð kírópraktors tryggði sýknudóm

Karlmaður var í gær sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands vestra af ákæru um ölvunarakstur. Sérsveitarmenn keyrðu fram á umferðarslys í september og tilkynntu almennu lögreglunni um að ökumaður hefði sennilega verið ölvaður við akstur. Þeir sögðust hafa séð manninn stíga út úr bílnum bílstjóramegin. Maðurinn neitaði því þó að hafa ekið bílnum og kvað annan mann hafa verið undir stýri. Sá hefði þó horfið af vettvangi áður en lögregla mætti á staðinn.Maðurinn var ákærður fyrir ölvunarakstur. Dómari sýknaði hann á grundvelli vottorðs frá kírópraktor sem sagði áverka á öxl og brjóstkassa vera í samræmi við að hann hefði verið farþegamegin í bílnum.Horft inn í dómsal Héraðsdóms Norðurlands vestra.RÚV / Aðsent
Vottorð kírópraktors tryggði sýknudóm

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd