Lögregla dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dró rafbyssu úr slíðri og beindi henni gegn einum þegar hún sinnti innbrotstilkynningu. Ekki þurfti að beita vopninu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefnin frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.Þar segir að tilkynning hafi borist á lögreglustöð 2 um yfirstandandi innbrot. Sú stöð sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Í tilkynningu sagði að fólk væri að reyna að komast inn til tilkynnanda.„Lögregla mætti á vettvang og kom að aðilunum, dró rafvarnarvopn og beindi að einum aðila á vettvangi en þurfti ekki að beita vopninu. Vettvangur tryggður og var ekki um innbrot að ræða, reyndist tilkynnandi eftirlýstur og var hann færður til skýrslutöku eftir að búið var að leysa málið á vettvangi,“ segir í dagbók lögreglu.Stöð 3,
Lögregla dró upp rafbyssu eftir tilkynningu um innbrot

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd