Segir bandaríska erindreka viljuga til að vinna að friðarsamkomulag

Volodymyr Zelensky segir að hann hafi átt „jákvæð samtöl“ við Steve Witkoff og Jared Kushner. Þeir eru stjórnarerindrekar Bandaríkjanna og hafa haft milligöngu um friðarviðræður Rússa og Úkraínumanna Í tilkynningu Zelenskys á Telegram frá því í gær hrósar hann þeim Witkoff og Kushner fyrir hve viljugir þeir eru til þess að vinna að friðarsamkomulagi.Um helgina fundaði Zelensky með þjóðarleiðtogum Bretlands, Frakklands og Þýskalands í London. Þar ræddu þeir um næstu skref í friðarviðræðum og aukinn stuðning við Úkraínu.Þeir Keir Starmer, Emmanuel Macron og Friedrich Merz voru sammála um að koma ætti á fundi milli Zelenskys og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta til þess að þeir gætu rætt um vopnahlé milli ríkjanna. Stjórnvöld í Evrópu gætu komið þar að máli. SKILUR AÐ ÍRAN SÉ Í BRENNIDEPLI
Segir bandaríska erindreka viljuga til að vinna að friðarsamkomulag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd