Kjarnorkuríki heims hafa aldrei varið eins miklu fé í kjarnorkuvopn og í fyrra

Þau níu ríki heims sem búa yfir kjarnorkuvopnum vörðu 119 milljörðum dala í slík vopn í fyrra. Það eru nærri 15 þúsund milljarðar króna.Á milli ára jukust útgjöldin um 17 milljarða dala, rúmlega 2.000 milljarða króna, og hafa aldrei verið meiri.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá ICAN. Það eru samtök sem berjast gegn kjarnorkuvopnum. Þau hlutu friðarverðlaun Nóbels 2017. SKÝRSLUHÖFUNDUR SEGIST „SKELFINGU LOSTIN“ Susi Snyder, meðhöfundur skýrslunnar, segir þetta áhyggjuefni. Því til viðbótar hafa skýrsluhöfundar varað við því að notkun gervigreindar geti aukið hættuna á því að kjarnorkuvopnum verði beitt.„Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá er ég skelfingu lostin,“ segir Snyder við AFP-fréttaveituna. Skýrsluhöfundar vara við því að nýtt kjarnorkukapphlaup sé runnið upp. ÚTGJÖLD JUKU
Kjarnorkuríki heims hafa aldrei varið eins miklu fé í kjarnorkuvopn og í fyrra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd