Sífellt fleiri hafa áhyggjur af stjórnlausri þróun gervigreindar. Evrópusambandið hefur komið á fót vísindanefnd um gervigreind.Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingmaður Pírata, er sérfræðingur í nefndinni. „Þetta er hópur óháðra sérfræðinga sem veitir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vísindalega og tæknilega ráðgjöf um áhættur og áhrif þessara gervigreindarkerfa,“ segir Halldóra. Stofnun nefndarinnar var hluti af gervigreindarlögum sambandsins. GERVIGREINDIN GRÍÐARLEGA GÖLLUÐ Atvinnumissir, upplýsingastríð, sjálfvirk vopnakerfi og fleira eru hættur gervigreindar að sögn Halldóru. „Við erum að nota tækni sem við skiljum ekki að fullu. Það í sjálfu sér er gríðarmikið áhyggjuefni,“ segir hún.Stór tungumálalíkön eins og ChatGPT, Claude og Google Gemini, spái fyrir um mynstur en skilji ekk