Aðstandendum hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi hefur verið tilkynnt að því verði lokað á næsta ári. Skortur er á hjúkrunarrýmum og ráðherra kynnti áætlun um uppbyggingu í mars. Þá voru yfir sjö hundruð á biðlista. Á Ljósheimum á Selfossi eru tuttugu hjúkrunarrými.Systurnar Steinunn Kristín og Jóna Kristbjörg Hafsteinsdætur eiga foreldra sem búa á Ljósheimum. Þau fluttu þangað síðasta haust eftir að hafa verið inn og út af spítala um hríð. Þær hafa áhyggjur af lokuninni og því sem taki við. Þær segja mjög vel hugsað um foreldra sína á Ljósheimum.„Mamma er mjög sátt og líður rosalega vel þar sem þau eru núna. Og pabbi er svona alveg að verða sáttur og þá náttúrulega skella á einhverjar breytingar,“ segir Steinunn Kristín.Á þriðjudaginn í síðustu viku var þeim tilkynnt um lokunina. Íb