Formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri segir stöðuna í ferðaþjónustu erfiða. Hækkandi vextir, verðbólga og launahækkanir, ásamt áhugaleysi stjórnvalda, geri greininni erfitt fyrir. Fleiri ferðamenn en áður segja ferðalag til Íslands ekki peningana virði.„Hækkandi vextir, verðbólga, ég tala nú ekki um launahækkanir. Þetta er gríðarlega erfitt fyrir greinina. Það er engin launung á því,“ segir Kristófer Oliversson, formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri.Hann segir átök í Miðausturlöndum hafa áhrif á ferðamannaiðnaðinn hér á landi. Maímánuður hafi verið undir væntingum og erfiðir tímar séu fram undan. „Við vonumst til þess að það rætist úr þessu í júlí og ágúst en hver veit,“ segir Kristófer.Hann kallar eftir því að stjórnvöld endurskoði ferðamálastefnu sem samþykkt var á Alþingi árið 2