Tveggja ára drengs er leitað í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Síðast sást til hans stuttu fyrir hádegi að íslenskum tíma við heimili á bóndabæ.Björgunarsveitir og lögregla með leitarhunda standa að leitinni auk þess sem notast er við þyrlur og dróna. Sænski herinn hefur einnig verið kallaður til. Viðbúið er að leitinni verði fram haldið inn í kvöldið og nóttina finnist drengurinn ekki.