Fleiri berklasmit hafa greinst hjá starfsfólki Landspítala síðustu vikur. Læknir sem greindist segir það varla geta verið tilviljun að mörg smit komi upp á sama stað. Bæta verði sýkingavarnir.„Ég var semsagt að greinast með berkla fyrir tæpum tveimur vikum eftir að hafa fengið sms um að hafa verið útsettur fyrir berklum á bráðamóttökunni,“ segir Steinar Orri Hafþórsson bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítala.Fleiri starfsmenn bráðamóttöku Landspítala hafa greinst með berkla. Bráðalæknir sem greindist nýlega segir litlar breytingar hafa orðið á sýkingavörnum eftir að smit kom upp á deildinni í febrúar.Í febrúar greindust átta starfsmenn bráðamóttöku Landspítala með berkla og luku nýverið lyfjameðferð. Smitið var ein birtingarmynd aðstæðna sem sköpuðust á deildinni í febrúar þegar ekki var hæ