Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið.