Teistan, farþegabátur gerður út af Ribsafari í Vestmannaeyjum, sigldi í dag á milli Landeyjahafnar og Eyja.„Það koma upp aðstæður, eins og í dag, þar sem ófært er fyrir Herjólf í Landeyjahöfn en smærri bátur öflugur gæti komist þangað inn,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Hann segir að þess vegna hafi verið fundið upp á því að vinna með Ribsafari til að sigla til Landeyjahafnar.Aðstæður í Landeyjahöfn hafa verið erfiðar það sem af er ári og Herjólfur oftast þurft að sigla lengri leiðina til Þorlákshafnar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir aðstæður kalla á fleiri lausnir. Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og aftur þangað seinnipartinn. GERT MEÐ ÖRYGGI AÐ LEIÐARLJÓSI Fyrir fólk sem hefur farið til Vestmannaeyja og skilið bílinn eftir