Íbúar á Reykjanesskaga urðu varir við jarðskjálfta um klukkan hálf sjö í kvöld. Sá var 2,9 að stærð og átti upptök sín um tíu kílómetra vestur af Reykjanestá. Skjálftinn er hluti af hrinu á Reykjanesskaga sem hófst um klukkan níu í gærkvöld. Alls hafa um 180 skjálftar mælst á tæplega sólarhring.Skjálftinn sem fólk fann fyrir um kvöldmatarleytið er næststærsti skjálftinn í hrinunni. Aðeins skjálfti upp á 3,5 sem reið yfir upp úr klukkan fimm í morgun hefur verið stærri. NASA