Sextán ára bresk stúlka segir það hafa verið nýtt áfall þegar piltarnir sem nauðguðu henni sluppu við fangelsisvist. Þeir voru sakfelldir fyrir tvær hópnauðganir.Þrír fjórtán og fimmtán ára piltar voru í vikunni sakfelldir fyrir tvær hópnauðganir. Tveir eldri drengirnir voru fjórtán ára þegar þeir nauðguðu tveimur stúlkum, í sitt hvorri árásinni, og tóku það upp á myndband. Þrettán ára drengur hvatti þá áfram við aðra nauðgunina. Drengirnir deildu upptökum af nauðgununum á samfélagsmiðlum.Önnur stúlkan hafði kynnst einum árásarmannanna á samfélagsmiðlum. Hún taldi sig vera að fara á stefnumót við hann en þá réðist hann á hana ásamst félögum sínum og nauðgaði henni.Piltarnir voru dæmdir til eins og hálfs til þriggja ára endurhæfingar og eldri drengirnir tveir verða að sæta eftirliti og umsj