Rússar hafa gert vel heppnaðar tilraunir með Saramat-flugskeyti en það er langdrægt og getur borið marga kjarnaodda. Þetta sagði Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, nýlega að sögn Nettavisen. Alþjóðlegir fjölmiðlar kalla flugskeytið yfirleitt Satan II. Pútín sagði að flugskeytið geti dregið allt að 35.000 kílómetra og verði tilbúið til notkunar í árslok. Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) segir að tilraunin með flugskeytið snúist um meira en Lesa meira