Fjölmennt lið lögreglu stóð í aðgerðum í Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi í dag. Þar voru saman komnir bæði almennir lögreglumenn og liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra. Lögreglumenn sáust á ferli í görðum og virtust vera að leita að einhverju en ekki er vitað hverju.Lögregla sást leiða einn mann út úr fjölbýlishúsi. Sá var handjárnaður.Lögregla sendi minnst fjóra bíla almennu lögreglunnar í útkallið auk þess sem sérsveitin mætti með sex menn á þremur bílum.Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað varð til þess að lögregla fór á staðinn.Vísir greindi frá því rétt fyrir klukkan fjögur að maður hefði gengið blóðugur inn í bakarí við Hafnarbraut á Kársnesi. Sjónarvottar sögðu manninn hafa verið vankaðan en hann hefði sagt þeim að hann hefði verið skotinn í höndina.Lögreglan sendi frá sér fr