Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð

Maður var fluttur á slysadeild með hugsanlega skotáverka og annar var handtekinn í aðgerðum lögreglu á Kársnesi í Kópavogi í og upp úr hádeginu. Þetta staðfestir Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Grunur leikur á að annar maðurinn hafi skotið hinn í höndina.Agnes segir að lögregla hafi fundið skotvopn á vettvangi en segir að ekki séð staðfest að það sé vopnið sem var beitt. Rannóknin er enn í fullum gangi.Tveir viðmælendur fréttastofu sem búa á þessum slóðum segjast hafa heyrt skothvell. Annar segir að hann hafi álitið Ísland svo öruggan stað að hann áttaði sig ekki á því fyrr en lögregla kom að hvellurinn sem hann heyrði væri skothvellur.Einn viðmælandi fréttastofu segir að mikið partístand hafi verið í nótt í húsi þar sem ein
Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd