„Oddastefnan er að þessu sinni uppskeruhátíð á vissan hátt þar sem farið er yfir afrakstur þeirra fimm ára sem Oddarannsóknin stóð yfir,“ segir Friðrik Erlingsson verkefnastjóri Oddafélagsins, þegar Morgunblaðið spyr hann út í Oddastefnuna sem fram undan er í Gunnarsholti hinn 30. maí og verður helguð Sæmundi fróða.