Trump segir samningamönnum að flana ekki að neinu

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag hafa fyrirskipað samningamönnum Bandaríkjanna að fara sér að engu óðslega í viðræðum við Írani.Þetta sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann sagði að viðræðurnar gengju vel og skipulega fyrir sig. „Ég hef sagt fulltrúum mínum að fara sér að engu óðslega því tíminn vinnur með okkur.“Trump sagði jafnframt að hafnbann Bandaríkjanna á Íran yrði í fullu gildi þar til samningar hefðu náðst, þeir verið undirritaðir og staðfestir.Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrr í dag að góðar fréttir af viðræðum við Íran gætu borist á næstu klukkustundum.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.EPA / WILL OLIVER
Trump segir samningamönnum að flana ekki að neinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd