Fjölmennt lið lögreglu í aðgerðum á Kársnesi

Fjölmennt lið lögreglu stóð í aðgerðum í Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi í dag. Þar voru saman komnir bæði almennir lögreglumenn og liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra.Lögregla sendi minnst þrjá bíla almennu lögreglunnar í útkallið auk þess sem sérsveitin mætti með sex menn á þremur bílum.Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað varð til þess að lögregla fór á staðinn.Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, staðfesti í samtali við fréttastofu að sérsveitin hefði verið lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar.Vísir greindi frá því í morgun að fjórir lögreglubílar hefðu verið kallaðir út á Laugaveg. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru ekki tengsl þarna á milli.Fréttin verður uppfærð.
Fjölmennt lið lögreglu í aðgerðum á Kársnesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd