Lögreglan braust inn í höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar

Hundruð tyrkneskra lögreglumanna í óeirðabúnaði brutu sér leið inn í höfuðstöðvar CHP, helsta stjórnarandstöðuflokks landsins, í dag. Þeir notuðu táragas til að dreifa flokksmönnum sem stóðu vörð um skrifstofur flokksins.Dómstóll kvað í vikunni upp þann úrskurð að kjör á forystu flokksins sem fram fór 2023 væri ógilt. Dómstóllinn sagði að Ozgur Ozel, sem vann kjörið, yrði að láta af völdum og rýma til fyrir Kemal Kilicdaroglu, forvera sínum. Úrskurðurinn er hluti af rannsóknum yfirvalda á stjórnarandstöðuflokknum.Stuðningsmenn CHP brugðust ókvæða við og stóðu vörð um höfuðstöðvarnar. Þeir reyndu að byrgja alla innganga og koma í veg fyrir að forystan yrði borin út.Tyrkneskir dómstólar hafa ítrekað kveðið upp dóma og úrskurði yfir stjórnarandstöðunni sem barist hefur gegn stjórn Tayyp Recep
Lögreglan braust inn í höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd