Skýr tengsl milli kæfisvefns og ofþyngdar hjá börnum

Kæfisvefn er talinn vera vangreint heilsufarsvandamál hjá börnum. Vandamálið hefur verið mikið rannsakað hjá fullorðnum og skýr og sönnuð tengsl eru milli ofþyngdar og kæfisvefns hjá þeim, en hefur aldrei áður verið mælt hjá börnum.„Helstu niðurstöður okkar voru þá þessar: Kæfisvefn meðal barna, og börnin okkar voru á aldrinum 4-9 ára, var vangreindur. En 22,7% þessara 371 barns sem tók þátt í rannsókninni reyndist vera með kæfisvefn,“ sagði Hannes Petersen, háls- nef og eyrnalæknir og einn af umsjónarmönnum rannsóknarinnar.Það var þverfaglegur hópur á vegum SAk sem rannsakaði svefn barna á aldrinum fjögurra til níu ára. Af þeim 22,7% barna sem greindust með kæfisvefn voru 6,5% þeirra með alvarlegan kæfisvefn og 16,2% með miðlungs-alvarlegan kæfisvefn. SÖMU TENGSL HJÁ FULLORÐNUM OG BÖRNU
Skýr tengsl milli kæfisvefns og ofþyngdar hjá börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd