Íbúar á Suðvestur-Jótlandi eru margir hverjir uggandi vegna úlfa sem gera sig heimakomna í nágrenni smábæjarins Oksbøl. Úlfum var útrýmt í Danmörku árið 1813 en nú virðast þeir sestir að á nýjan leik. Ekki aufúsugestir segja sumir en aðrir fagna þessari viðbót við villidýraflóruna. Fyrr á öldum voru úlfar tiltölulega algengir í mörgum löndum Evrópu, þar á meðal í Danmörku,...