Samninganefndir sendar inn í helgina með heimavinnu

Tíð fundahöld eru hjá ríkissáttasemjara vegna viðræðna flugmanna og flugvirkja við Icelandair um nýja kjarasamninga.Ríkissáttasemjari sendi samninganefndir flugfélagsins og flugmanna inn í helgina með heimavinnu til að undirbúa næsta samningafund á morgun.Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að viðræðum miði ágætlega.„Við áttum góðan fund á föstudaginn og miðaði ágætlega þar. Við erum með smá heimaverkefni um helgina frá sáttasemjara hvað varðar gögn og slíkt. Við ætlum að hittast aftur á morgun til þess að halda því áfram.“Jón Þór segir mjög miður að flugferðir hafi fallið niður undanfarið. Hann segir ástæðurnar fyrir því þó vera nokkrar: hluti sé áhafnaskortur, annað vegna viðhaldsmála og eins hafi það áhrif að afhendingu flugvélar seinkaði í vor.„Okkar
Samninganefndir sendar inn í helgina með heimavinnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd