Enn er verið að meta stöðuna varðandi mögulegar formlegar viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.Samkvæmt heimildum fréttastofu er staðan óbreytt eftir fundahöld síðustu viku þar sem Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna átti einkafundi með oddvitum Miðflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í fyrradag.Ekki er vitað um frekari fundahöld í dag.Oddvitar flokkanna í Reykjavík sem hafa rætt um mögulega meirihlutamyndun.Fréttagrafík / Kristrún Eyjólfsdóttir