Vonir standa til þess að stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum komist að samkomulagi, jafnvel strax í dag, um að ljúka stríðinu sem hófst með loftárásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 28. febrúar.Samningamenn ríkjanna hafa unnið að því að skrifa texta samkomulags sem bindi enda á stríðsátök og yrði til að opna fyrir umferð skipa um Hormússund. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að þokast hefði í samkomulagsátt og hótaði frekari árásum ef samningar næðust ekki. Hann hefur reyndar áður gefið frá sér álíka yfirlýsingar án þess að úr þeim rættist.Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að það væri möguleiki á því að góðar fréttir bærust á næstu klukkustundum. Rubio sagði að samkomulagið sem nú er í vinnslu myndi marka upphaf að ferli þar sem „heimurinn þarf ekki l