Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibanar hafa verið við völd í tæp fimm ár í landinu? Fjallað var um stöðuna í Afganistan í Heimskviðum.Talibanar hafa verið við völd í Afganistan í tæp fimm ár. Mikill skortur er á mannúðaraðstoð í landinu, en fátækt, hungur, atvinnuleysi og mannleg eymd hefur aukist verulega á þessum árum.Fréttamyndir frá miðjum ágúst 2021 eru eflaust mörgum enn í fersku minni, enda fönguðu þær neyð og skelfingu fleiri þúsunda Afgana sem reyndu í örvæntingu sinni að komast burt frá landinu þegar ógnarstjórn talibana náði völdum á ný. Lýðræðið stóð á afar veikum stoðum og í ra