Skemmtanahald gærkvöldsins og næturinnar virðist hafa verið friðsælt, að því sem ráða má af samtölum fréttastofu við lögreglu í morgun. Tveir voru handteknir vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í Reykjavík og lögregla hjálpaði húsráðendum við að vísa gestum á braut eftir að partí í heimahúsi fór úr böndunum. Enginn fékk þó að gista fangaklefa í nótt.Rólegt var á Akureyri og Egilsstöðum.Erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar kom að sjúkraflutningum. Minna reyndi á dælubílana sem fóru í fjögur útköll. Á einum stað var tilkynnt um eld en síðan kom í ljós að meira fjör hafði færst í leikinn í eldamennsku en til stóð. Eldamennskan endar stundum með útkalli slökkviliðs.Pxhere