Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að í dag verði tilkynnt um endalok stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans.„Ég held að það sé kannski möguleiki á því á næstu klukkustundum að heimsbyggðin fái góðar fréttir,“ sagði Rubio þegar hann ræddi við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi. Hann sagði að í samningi yrði tekið á siglingum um Hormús-sund og kjarnorkuvopnaþróun Írana. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að árangur virtist vera að nást í friðarviðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hann sagði að í framhaldinu yrði reynt að tryggja frið til langrar framtíðar.Eldsneytisverð hefur hækkað mikið á heimsvísu vegna stríðsins við Persaflóa.EPA / JIM LO SCALZO
Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd