Fjórir voru drepnir í stórfelldum loftárásum Rússa á Úkraínu í nótt. Að sögn úkraínskra yfirvalda skutu Rússar 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu. Loftvörnum tókst að skjóta niður 549 dróna og 55 eldflaugar, að sögn úkraínska flughersins.Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði að Rússar hefðu skotið Oreshnik-eldflaug að Úkraínu. Slíkar eldflaugar geta meðal annars borið kjarnorkusprengjur og ná allt að tíföldum hljóðhraða eða sem nemur 12.300 kílómetrum á klukkustund.Fjórir voru drepnir í höfuðborginni Kiyv og nágrenni hennar, að sögn borgarstjórans í Kiyv og héraðsstjóra. 65 hið minnsta særðust í árásunum.Meðal þess sem Rússar réðust að voru vatnsveita, verslanahverfi, skólar og fjölbýlishús, að sögn úkraínskra yfirvalda.