Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu lýsti yfir neyðarástandi í gær vegna eiturefnaleka úr birgðatanki á Green Grove-svæðinu í Orange-sýslu í Kaliforníu. Um 26.000 lítrar af metýl-metakrýlati eru geymdir í tankinum. Efnið er rokgjarnt og eldfimt og er notað til að búa til plastefni.Mikil hætta er talin vera á að tankurinn springi í loft upp. Hættusvæðið hefur verið skilgreint í 335 metra radíus frá tankinum og talin er hætta á miklu tjóni innan þess svæðis ef tankurinn springur. Tjón gæti einnig orðið utan hættusvæðisins.Slökkviliðsmenn hafa sprautað vatni á tankinn til að reyna að koma í veg fyrir að hann ofhitni en það hefur lítil áhrif haft til þessa. Yfirvöld leita allra leiða til að koma í veg fyrir sprengingu.Um 40.000 íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eiturefnalekans.Met