Úrkoma í flestum landshlutum

Útlit er fyrir allt að 15 stiga hita á Austfjörðum í dag. Þar verður væntanlega þurrt og bjart. Í öðrum landshlutum er þó útlit fyrir skúrir. Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu og skúrir, en að mestu bjart austanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austfjörðum.Hægari vindur og skúrir á morgun, en vestan átta til þrettán með suðurströndinni síðdegis. Þurrt að kalla norðaustantil, en stöku skúrir síðdegis. Hiti 8 til 14 stig, mildast norðan heiða.
Úrkoma í flestum landshlutum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd