Mikil mótmæli í Belgrad

Tugir þúsunda komu saman í gær í Belgrad í Serbíu til að kalla eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu. Þegar leið á daginn urðu átök milli mótmælenda og lögreglu. Grjóti var kastað að lögreglu sem beitti táragasi gegn mótmælendum.Mikil mótmæli hafa reglulega verið í Belgrad eftir að 16 létust þegar steinsteypt þak á lestarstöð hrundi niður í borginni Novi Sad í nóvember 2024. Stúdentar hafa leitt mótmælin og fyrst um sinn kölluðu mótmælendur eftir því að gerð yrði ítarleg rannsókn á slysinu.Með tímanum hafa mótmælin beinst í æ meiri gegn forsætisráðherranum og þjóðernissinnanum Aleksandar Vučić. Mótmælendur vilja að þingkosningum verði flýtt en Vucic hefur sagt að þær verði í haust. Mótmælin hafa að mestu farið friðsamlega fram en undanfarið hafa átök aukist milli mótmælenda og l
Mikil mótmæli í Belgrad

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd