Skothvellir við Hvíta húsið - byssumaðurinn látinn og einn særður

Einn er særður og byssumaðurinn er látinn eftir skotárásina við Hvíta húsið fyrr í kvöld. Svo virðist sem byssumaðurinn hafi skotið á leyniþjónustumann sem skaut byssumanninn til baka. Hann lést síðar af áverkum sínum á spítala, samkvæmt CBS News. Vegfarandi særðist einnig en ekki er vitað hver skaut á hann. Engir leyniþjónustumenn særðust í árásinni.Donald Trump Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar byssumaðurinn réðst til atlögu við Hvíta húsið. Skotárásin var gerð um klukkan sex að staðartíma. Fjölmennur hópur fjölmiðlafólks á vegum CBS News var við störf á norðurhlið hússins þegar skothvellirnir heyrðust. Fréttamaður ABC News, Selina Wang, var á vettvangi og lýsti því einnig að hún hefði heyrt tugi skothvella. Hér má sjá myndskeið sem hún deildi af atvikinu.Lögregla girti af svæði
Skothvellir við Hvíta húsið - byssumaðurinn látinn og einn særður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd