Að minnsta kosti einn var drepinn og 20 eru særðir eftir miklar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Rússar hafa meðal annars gert árásir með flugskeytum og drónum. Úkraínsk stjórnvöld og bandaríska sendiráðið höfðu varað íbúa við hugsanlegum árásum og enn er íbúum ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum.Stjórnvöld í Moskvu segja að úkraínski herinn hafi drepið 18 almenna borgara á stúdentagörðum aðfaranótt föstudags í Starobilsk. Þá eru 42 sagðir særðir. Úkraínski herinn hefur neitað því að hafa gert árás á almenna borgara og segir árásina hafa verið á hernaðarlega innviði.Pútín sagði í gær að hann hefði beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar árásir til að hefna árásanna í Starobilsk.Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem allar árásir á almenna borgara og