Grunnskóli Húnaþings vestra stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni að Varmá í kvöld. Laugalækjarskóli endaði í öðru sæti og Víðistaðaskóli hafnaði í því þriðja, en skólarnir skildu jafnir með 54 stig hvor.Keppt var í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Keppt var í upphífingum, armbeygjum, dýfum, hreystigreip og hraðaþraut. Sigurliðið var skipað Hafþóri Inga Sigurðssyni sem keppti í upphífingum og dýfum, Jóhönnu Guðrúnu Jóhannsdóttur sem keppti í armbeygjum, Ingu Lenu Apel Ingadóttur sem keppti í hreystigreip og Guðna Þór Alfreðssyni í hraðaþraut en Guðni stökk inn sem varamaður fyrir Helga Frey Guðmundsson sem meiddist í upphitun.Saga Björgvinsdóttir, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði, sigraði hreystig