Leikjahátíðin Isle of Games er haldin í Bíó Paradís þessa hvítasunnuhelgi. Nanna Gunnars, skipuleggjandi hátíðarinnar, segir alla aldurshópa velkomna frá klukkan 12 til 18 sunnudag og laugardag. Eftir klukkan 18:00 hefst þó fullorðinsdagskrá á hátíðinni á laugardeginum.Að sýningunni standa leikjasmiðir, leikarar, og grafískir hönnuðir og eru ellefu íslenskir leikir til sýningar og fjórir erlendir. Þá verður einnig sýndarveruleikamyndin Fallax frumsýnd í sýndarveruleikagleraugum á hátíðinni en Nanna er einn framleiðenda hennar.Leikirnir sem eru til sýningar eru af margvíslegum toga en eiga það sameiginlegt að vera samspil listar og leikja.