Segja að þokast hafi í viðræðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að þokast hefði nær samningum við Íran um stríðslok. Þá hótaði hann hörðum árásum næðust samningar ekki.Yfirmaður hers Pakistans, sem verið hefur í Íran um helgina og reynt að miðla málum, segir einnig að mögulega hafi eitthvað áunnist. Enn virðist þó mikið bera í milli. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans segir Írana vilja stríðslok á öllum vígstöðvum, þar með talið í Líbanon. Þá neiti Íranar að semja um kjarnorkuáætlun sína. HÓTANIR Á BÁÐA BÓGA Ekki er lengra síðan en í gær að bandarískir fjölmiðlar greindu frá því að Bandaríkin og Ísrael myndu mögulega ráðast á Íran að nýju. Ráðamenn í Íran hóta grimmilegum hefndum. „Herirnir eru betur undirbúnir en nokkru sinni. Þeir eru í viðbragðsstöðu gráir fyrir járnum, svo að ef fjandmanninum verður ei
Segja að þokast hafi í viðræðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd