Velferðarnefnd Reykjavíkurborgar vill verja tæpum 100 milljónum til viðbótar árlega til Barnaverndar Reykjavíkur til að fjölga starfsfólki og reka nýtt neyðarheimili. Tugir barna voru vistaðir í Bakkakoti á vegum borgarinnar.Reykjavíkurborg var eitt þeirra sveitarfélaga sem sendi börn í vistun í Bakkakot. Þrjátíu börn voru send í Bakkakot á vegum félagsmálayfirvalda á árunum 1999 til 2005 langflest í sumardvöl.„Við bara finnum til ábyrgðar og auðvitað bara sorgar yfir því að þetta hafi gerst. Við vitum að það voru fleiri en þá þarf að fara að grafa ofan í skjalasöfn og svoleiðis þannig að það er bara vinna sem þarf að fara í,“ segir Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur.276 börn eru nú í vistun á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Velferðarráð samþyk