Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, varðist gagnrýni á hendur sér í athugasemdum við Facebook-færslu Unnars Þórs Sæmundssonar, eins þeirra sem segjast hafa verið beittir margvíslegu ofbeldi á Bakkakoti á Suðurlandi í æsku.Unnar gagnrýndi viðbrögð Braga sem sagðist í viðtali í fréttum og Kastljósi hvorki hafa vitað af Bakkakoti og né heyrt um ofbeldi gegn fósturbörnum fyrr en greint var frá því í Kveik. Unnar var meðal þeirra sem stigu fram í umfjöllun Kveiks um Bakkakot.Unnar Þór brást við orðum Braga í aðsendri grein á Vísi í dag. Bragi svaraði Unnari í Facebook-athugasemd síðdegis.Þar segist hann hafa beitt sér fyrir umbótum um hæfnismat og fræðslu sem skilyrði fyrir leyfi til að verða fósturforeldri á 10. áratug síðustu aldar. Þær breytingar ha