Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Biðla til íbúa að fara sparlega með kalda vatnið

Veitur biðlar til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga sérstaklega að notkun kalda vatnsins næstu vikur til að tryggja að nægt vatn sé á meðan loðnuvertíðin stendur yfir.Í tilkynningu frá Veitum segir að um tímabundið ástand sé að ræða en á meðan vertíðin stendur yfir aukist heildarvatnsþörf í bænum verulega. Það sé alla jafna ekki vandamál en nú hafi miklir þurrkar og langvarandi frost haft áhrif á vatnstökusvæði bæjarins.Þar sem úrkoma virðist áfram lítil er biðlað til allra fyrirtækja, stofnana og íbúa að fara sparlega með kalda vatnið næstu vikurnar til að tryggja að nóg sé til fyrir mikilvæga verðmætasköpun á Akranesi og til að öll hús fái þann vatnsþrýsting sem til þarf. MÆLT MEÐ AÐ LÁTA VATNIÐ EKKI RENNA AÐ ÓÞÖRFU Drykkjarvatnið megi drekka að vild, nota í matseld og láta renna
Biðla til íbúa að fara sparlega með kalda vatnið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta