Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning í dag um að sést hefði til fólks feta ísinn á Ölfusá.Fram kemur í tilkynningu lögreglu að hættulegt sé að fara út á ísinn við ána þar sem hann sé aldrei öruggur.Lögreglan brýnir fyrir fólki að fara alls ekki út á ísilagða ána og hvetur foreldra til að vekja athygli barna sinna á hættunni sem getur skapast við slíkar aðstæður.Lögreglan brýnir fyrir fólki að fara alls ekki út á ísinn.RÚV / Ragnar Visage