Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Krefjast þess að arðsemi Fjarðarheiðarganga verði endurmetin

Þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd vilja fá samgönguráðherra sem fyrst á fund nefndarinnar til að skýra forgangsröðun í jarðgangaframkvæmdum á næstu árum. Fljótagöng eru fremst á listanum en óvíst er hvenær framkvæmdir geti hafist. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hefur sagt að það verði í byrjun næsta árs.Forseti sveitarstjórnar Múlaþings hefur sakað ráðherrann um að svína á Austurlandi og hvetur nefndina Umhverfis- og samgöngunefnd til að láta endurreikna arðsemi Fjarðarheiðarganga enda hafi hún verið grunnforsenda þess að slá göngin af. VERKFRÆÐINGUR OG LÖGFRÆÐINGUR RÝNDU ARÐSEMISSKÝRSLU OG TELJA AÐFERÐIR RANGAR Arðsemisútreikningar vógu þungt þegar innviðaráðherra kynnti að Fjarðarheiðargöng yrðu ekki áfram næst í röðinni. Mjóafjarðargöng ættu frekar að rjúfa vetrareinangrun
Krefjast þess að arðsemi Fjarðarheiðarganga verði endurmetin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta