Hafnarfjarðarbær hefur þrisvar sinnum á kjörtímabilinu greitt bætur vegna starfsmannamála. Þá hafa verið gerðir 16 starfslokasamningar sem ná umfram þriggja mánaða uppsagnarfrests. Þetta kemur fram í minnisblaði mannauðsstjóra Hafnarfjarðarbæjar til bæjarráðs sem lagt var fram á fundi þess í gær. Tilefnið var fyrirspurn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar þar sem óskað var sundurliðunar á sérsamningum um greiðslu bóta vegna starfsmannamála, starfslokasamningum og sérstökum...