Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir inn á skrifstofu forseta til starfa sem fjármála- og rekstrarstjóri og sérfræðingur. Sá sem tekur við síðarnefnda starfinu er því þó ekki ókunnugur því hann hefur gegnt því undanfarið í leyfi frá störfum sem prófessor við Háskóla Íslands.Rúmlega hundrað manns sóttu um stöðu sérfræðings sem á að hafa umsjón með ýmsum innlendum og erlendum samstarfsverkefnum forsetaembættisins auk þess að sinna upplýsingaöflun og textagerð. Jón Karl Helgason, prófessor við Háskóla Íslands, var ráðinn í starfið. Hann hefur unnið sem sérfræðingur á forsetaskrifstofunni í leyfi frá háskólanum. Hann er með doktorspróf í samanburðarbókmenntum og hefur stundað margvíslegar rannsóknir, kennslu og útgáfustarfsemi.Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður fjármála- og rekstrarstjóri