U2 - AMERICAN OBITUARY Hljómsveitin U2 var stærsta rokkhljómsveit í heimi á níunda og tíunda áratugnum en er búin að vera með hötuðustu og hallærislegustu hljómsveitum heims síðustu ár. Nú virðist vera að birta til hjá gömlu ef marka má skrif skríbenta og umræðu aðdáenda þeirra um nýjustu þemaplötu sveitarinnar Days of Ash sem inniheldur mótmælasöngva sem kom út í vikunni og þykir vera bærileg. JOYCE MANOR - ALL MY FRIENDS ARE DEPRESSED Frá Dublin förum við til Kaliforníu og hittum fyrir Joyce Manor sem eru hressir strákar að skemmta sér við að hlusta á hina ágætu sveit The Smiths og gera grípandi lög. Lag þeirra All My Friends are Depressed er gefið út á Epithaph og er búið að malla í rokkútvarpi í BNA frá því í lok sumars og er stöðugt að bæta við sig hlustendum - enda stórskemmtileg