Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sækist ekki eftir endurráðningu eftir sveitarstjórnarkosningar í vor.Regína var ráðin í starf bæjarstjóra árið 2022.Í tilkynningu á Facebook-síðu sinni segir Regína ákvörðunina ekki léttvæga. Henni finnist hreinlegast að gefa upp afstöðu sína á þessum tímapunkti til þess að framboðin viti að hverju þau gangi í aðdraganda kosninganna.„Ég lít gríðarlega stolt til baka og er endalaust þakklát fyrir þetta tækifæri til að starfa fyrir Mosfellinga í þessum fallega bæ með einstaklega góðu og hlýju mannlífi,“ segir Regína.Regína hyggst ljúka störfum sínum sem bæjarstjóri í vor.Aðsend mynd / Mosfellsbær