Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir greindir með berklasmit: Einkennalausir og ekki smitandi

Tveir starfsmenn á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu greindust með berklasmit þegar starfsfólk stöðvarinnar var skimað. Fólkið er hvorki með einkenni um berkla né smitandi. Fólk sem hefur komið á heilsugæslustöðina er því ekki útsett fyrir smiti í samskiptum við starfsfólkið.Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greindi frá þessu í dag. Framlínustarfsfólk var skimað eftir að smit greindust hjá starfsfólki á bráðamóttöku Landspítalans.Það sem þetta þýðir er að bakterían greindist í blóði starfsmanna án þess að þeir séu með einkenni berkla eða geti smitað aðra. Heilsugæslan tekur sérstaklega fram að þó að berklabakterían greinist í blóði þá þýði það ekki að fólk sé með berkla.
Tveir greindir með berklasmit: Einkennalausir og ekki smitandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta