Félags- og húsnæðismálaráðuneytið telur sig ekki hafa heimildir til að aðhafast vegna kvörtunar fyrrum starfsmanns ríkissáttasemjara um kynferðislega áreitni af hálfu Ástráðs Haraldssonar.Aldís G. Sigurðardóttir, fyrrum starfsmaður embættis ríkissáttasemjara, tilkynnti ráðuneytinu í byrjun júlí um atvik sem kom upp í fræðslu- og skemmtiferð embættisins til Vestmannaeyja haustið 2022. Sagði hún að Ástráður Haraldsson, sem var þá verktaki hjá embættinu, hefði snert hana á óviðurkvæmilegan hátt.Ári síðar var Ástráður skipaður ríkissáttasemjari og var Aldís einnig á meðal umsækjenda.Félags- og húsnæðismálaráðuneytið tók kvörtun Aldísar til skoðunar og komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki heimildir til að aðhafast frekar í málinu vegna þess að ekki var ráðningarsamband milli ráðuneytisi